|
|
23.06.2009 18:48:07 / kollagisla
halló allir  það gengur vel í reykingarbindindinu  er á gullströndinni hjá stelpunum mínum  ég held að allt þjóðfélagið sé allt farið til fjandans eða á góðri leið þangað  icesave bara klikkun   ég legg til að allir gangi á fjöll til að ná reiðinni úr sér  er búin að ganga á Strút í borgarfirði, Hafnarfjall á milli reykjavíkur og borgarnes, Þverfellshorn á Esju og flottasta jökul á landinu Snæfellsjökul  bara toppurinn á tilverunni.er búin að vera í borg óttans í hálfan mánuð og búin að hafa það frábært með litlu drengjunum mínum  jæja ætli þetta sé ekki nóg í bili kveðja frá fjallagarpi
»
09.02.2009 10:23:32 / kollagisla
komið þið sæl og blessuð  já er hætt að reykja þetta er fimmti dagurinn minn, japla bara á tyggjó,  ég fer alltaf að vorkenna mér þegar ég hætti að reykja, þessi reykir afhverju má ég þá ekki reykja, ég á aldrei eftir að reykja aftur, þvílíkt bull er þetta allt  svo er bara komin ný ríkisstjórn, en bara í áttatíu daga, hvað á maður að kjósa í vor, vinstra græna veit ekki eru alltof öfgafullir í mörgu, framsókn hver mun vera í framboði fyrir austurland, sjálstæðiflokkinn komin tími á að þeir taki sér frí, samfylkinguna veit ekki,  kannski ég skili bara auðu  annars er þetta búin að vera besti veturinn minn í mörg ár, þannig að ég er greinilega búin að vinna mikið og gott starf í mér  ég veit ekki með hann davíð oddson mér finnst eins og það hafi hlaupið í hann einhver þrái, ég fer ekki úr svörtu sölunum, segir hann, mmmm. erum að fara um næstu helgi á eyrina á þorrablót með Gísla og Svanbjörtu, gaman gaman  ætla svo um miðjan apríl til borg óttans og fara í leikhúsið með þrjú elstu barnabörnin mín á kardemommubæinn hlakka mikið til mér finnst svo gaman að barnaleikritum, kannski er það barnið í mér held það bara  jæja ætli þetta sé ekki bara fínt hér er eitt gott Til hvers lifum við ef ekki til þess að létta hvert öðru lífið  kveðja úr reyklausa húsinu
»
15.12.2008 20:18:59 / kollagisla
Sælt veri fólkið það eru níu dagar til jóla og ég er búin að skreyta jólatréið  hef aldrei skreytt það fyrr en á þorláksmessu en einhverntímann er allt fyrst  er búin að hafa það fínt í desember, fyrsti desembermánuður í mínu lífi sem ekki er allt einhvernveginn svo bilað  en svona er þetta bara, ætlum að eyða áramótunum á eyrinni hjá Gísla og dömunum þremur  gaman gaman, er að vinna og þarf að gera eitthvað að vita þar  kveðja, Kolla jólasveinn
»
21.11.2008 22:30:01 / kollagisla
komið þið sæl að sjálfsögðu er ég í borg óttans sem sagt reykjavík  það er fúlt að maður er búin að borga húsið sitt en samt er búið að setja á mann fjórar og hálfa miljón og alla íslendinga, sem er andskoti fúlt   og barnabörnin mín munu sitja í líka, ef það verða kosningar í vor hvað á maður að kjósa, ég treysti því miður engum að þessum alþingismönnum, ráðherrum né bönkunum  ef að lyft er upp teppi þá ullast undan því spilling og ógeð   en annars er allt gott að frétta hef það fínt hjá lenu minni og strákunum  er að fara í brúðkaup á morgunn  annars ætla ég bara að fara að sofa núna, og munið að eitt bros getur breytt öllu og það kostar ekkert kveðja ein sem er svekkt út í útrásina
»
23.10.2008 12:54:11 / kollagisla
komið þið sæl við erum alltaf að tala um að aflétta launaleynd en ég er svo svekkt með nýju bankastjórana í glitnir og nýja landsbankanum þær gefa ekki upp laun sín  í ástandi sem er eins og í dag allt á niðurleið og fara til fjandans afsakið orðbragðið þá á launaleynd ekki heima í þjóðfélaginu  urr ég er reið! hann hann Sigmar stóð sig vel í kastljósi í gærkveldi með hann geir í viðtali, sjálfstæðisflokkurinn er búin að vera síðustu ár í stjórn ríkisins en þetta ástand er ekki þeim að kenna segir geir, ríkisstjórnin svaf á verðinum afhverju fengu bankarnir að valsa svona um afþví að ef þú klappar mér á bakið og styrkir minn flokk þá leyfum við þessu að ganga yfir, og svo ÞESSIR REIKNINGAR Í BRETLANDI OG HOLLANDI á að setja okkur börnin okkar og barnabörn í þvílíkar skuldir út af einhverjum sem voru að GRÆÐA PENINGA   það er eins og þetta með seðlabankann afhverju eru þessir bankastjórar ekki settir af við erum ekkert að persónugera einhverja, þessir aðilar hafa ekki staðið undir því verki sem þeir eiga að vinna og hvað er þá gert, það er reynt að fá hæfara fólk sem kann til verka svona er bara lífið, svo vil ég að allir íslendingar fari inn á mbl. og skrifi undir listinn til bretlands!! og hana nú. annars er allt gott að frétta af mér er búin að taka upp verkfærakistuna mína og finna mér verkfæri til að lifa lífinum  það er hugræna atferlisbókin mín, draga kærleikskorn á hverjum morgni, bjartsýni, prjóna, hitta vinkonur mínar, tala um hlutina, hugsa til barnanna minna og barnabörn, bera gott krem á mig, vera í pilsi, bara að nefna það og allt er notað  jæja er þetta ekki fínt í dag góð orð frá móðir Teresu Lífið er tækifæri, gríptu það Lífiið er fegurð, dáðu hana Lífið er gjöf, njóttu hennar Lífið er draumur, láttu hann verða að veruleika Lífið er áskorun, taktu henni Lífið er skylda, gerðu hana Lífið er leikur, leiktu hann Lífið er dýrmætt, gættu þess Lífið er auðlegð, varðveittu hana Lífið er kærleikur, gef þig honum á vald Lífið er loforð, láttu það rætast Lífið er sorg, sigraðu hana Lífið er söngur, syngdu hann kveðja frá kolbrúnu
»
22.09.2008 22:23:15 / kollagisla
er komin til reykjavíkur  strákarnir mínir hafa það gott, reyndar er Aron Fannar að taka tennur svo það er pirringur og stundum grátur, hér er rigning og rok sem sagt típískt haustveður í borginni. stefni að því að hitta gamla vinkonu sem ég hef ekki hitt í svona 25 ár  það verður spennandi, er í tölvunni hans Axels hún er svo vinaleg íbúðin hans  er að hugsa um að fara í vöðvafræði í fjölbraut í ármúla eftir áramót langar að fara á nuddbraut  þetta kemur allt í ljós síðar, vantar einhverja gulrót til að koma mér í íþróttahúsið að nýju keypti mér mánaðarkort í byrjun september og er búin að fara einu sinni  er með maníu í að prjóna er búin með tíu sokkapör er að prjóna legghlífar á Alexöndru Kolbrúnu, ætla að prjóna vesti á Lenu Ýr  fór á tónleikana með Friðrik Ómari skemmtilegir, en hún skaut sér á fullu upp félagsfælnin átti erfitt um tíma að standa bara upp og fara, en þetta hafðist en fegin þegar þeir voru búnir.jæja ætli við komum okkur ekki uppeftir til Lenu. eitt að lokum elskið þið friðin og strjúkið á ykkur kviðinn  kveðja Kolbrún prjónakona
»
13.09.2008 16:53:15 / kollagisla
halló allir finnst ykkur þetta ekki skondið orð sófakartafla, þetta er eitthvert nýyrði  af mér er allt gott að frétta BÚIN að mála húsið  og það kemur mjög vel út  eða mér finnst það og skiptir það ekki mestu. í sumarfríinu mínu í borg óttans var þar í þrjár vikur ég held að ég og krakkarnir hafi farið í allar sundlaugar sem staðsettar eru í borginni:þ það var mjög gaman og gefandi að fá að njóta tímans með barnabörnunum mínum. mér finnst það skömm fyrir okkar þjóð að það skuli ekki verið búið að semja við ljósmæður, og þessi ríkistjórn hvað gerir hún forsetisráðherrann kærir félagið fyrir ólögmætar uppsagnir  hvað er eiginlega að honum mér finnst það gott hjá þeim að segja upp og ætla að hætta fyrsta október, kvennastéttir þurfa alltaf að ganga svona langt svo að það sé hlustað á okkur, ég er bara fúl  mér finnst að allar kvennastéttir eigi að skrifa undir undirskriftalista þeim til stuðnings  hugsið ykkur öll vinnan sem búið er að eyða til að leiðrétta launakjörn kvenna og karla, í síðustu könnun var þetta búið að hækka um þrjú prósent okkur í óhag, grrr  það er greinilega farið að hausta dásamlegt að hlusta á kvöldin á vindinn í trjánum, nú er farið að verða dimmt þannig að ég er alveg á tánum gagnvart þunglyndinu er búin að vera svo slæm síðustu ár, verð að vera vakandi fyrir einkennum því þau læðast að manni og allt í einu er maður komin í þokuna. förum suður um mánaðarmótin það á að fara að skíra Aron Fannar  gaman gaman svo ætla ég að fara með þrjú elstu barnabörnin mín í þjóðleikhúsið að sjá skilaboðaskjóðuna  jæja er þetta ekki bara að vera fínt, hér kemur eitt eftir Albert Einstein Það er hægt að lifa á tvennan hátt, annars vegar eins og engin kraftaverk væru til. Hins vegar eins og allt væri kraftaverk, fín speki, Kolbrún náttúrutröll
»
25.06.2008 12:02:54 / kollagisla
Jæja gott fólk því miður fer ég ekki í gönguferðina  valdi frekar að fara í hnéspeglun næsta mánudag. ég held að ég sé komin með fífil ofan á hausinn á mér er alltaf að rífa upp einhver bölvuð (fífl) eða fífla úr garðinum hjá mér  var að kaupa prufudósir af málningu jú við ætlum að reyna að mála húsið í sumar, fer í sumarfrí 13. júlí og verður þá brunað að stað og náð í þrjú elstu barnabörnin og farið í útilega og gert eitthvað skemmtilegt saman  það er sól úti núna og utangola  rosalega er bensínið orðið dýrt það kostar mig fram og til baka til Akureyrar 8000 þúsund krónur, hundar og beljur bara, en hvað getum við gert jú gengið í búðina og vinnuna, nota hjólið, strætó, sameinast í bíl veit ekki meir   annars er allt gott að frétta héðan allir hressir og kátir er það nú ekki frábært Og munum það að vera góð við hvort annað því eins og við sáum munum við uppskera  kveðja blómahnappur
»
30.05.2008 10:09:46 / kollagisla
Góðan daginn allir  er að sjálfsögðu í reykjavík er reyndar að fara á árshátið hjá granda hún verður haldin í gullhömrum þannig að það er stutt fyrir okkur Sveinba að ganga heim til Lenu Ýrar  Hér rifna þeir bræður út Aron Fannar er mjög líkur mömmu sinni og Axel Erni bróðir hennar:þ gönguáætlunin er komin og verður spennandi að fara þessa leið  ég fór út að ganga og skokkaði aðeins svo gerði ég teygjuæfingar úti oh hvað það var gott, ég held að eitt það besta sem ég geri á sumrin er að ganga berfætt úti í nýslegnu grasi og helst svona um sex leytið þegar engin er komin á ferðina  hef nú alltaf verið sérstök  jæja ætla að fara niður í slippfélag og velja mér lit á þakið og húsið en Ingólfur ætlar að mála fyrir okkur þakið  jææja hafið það nú æðislegt í dag því að dagurinn í dag er allt sem skiptir máli  kveðja úr borginni
»
24.05.2008 10:11:24 / kollagisla
jæja loksins ætla ég að rita hér eitthvað  er búin að vera með leiðindakvef, það á að taka vírana úr Alexöndru Kolbrúnu á mánudaginn  er að fara í sex daga vinnutörn  er ekkert farin að hreyfa mig fyrir gönguna, verð að finna mér einhverja gulrót til að koma mér út  er eins og einhver klessa í stól, ég setti mér markmið og horfi bara á endann að ég eigi að vera komin í eitthvað rosa form, svo þegar það stenst ekki fer ég að hegna mér  hef ekkert farið til Lóu geðhjúkku verð að fara að taka í öxlina á mér og hrista mig til og frá  kannski er best að byrja aftur á litlu markmiðunum fara út í garð og taka til, taka til í bílnum, fara á fætur elda mat  ykkur finnst þetta nú kannski ekkert en þetta eru stórir áfangir hjá mér:þ annars er þetta nú meiri vælið hjá mér þetta gæti verið miklu verra, alltaf gott að fara í pollínuleik  Svanbjört tengdadóttir er 28 ára í dag og Dagbjört Ýr verður 11 ára á morgunn  fann eitt kærleikskorn sem ég ætti að fara eftir allavega að reyna Ég set mér markmið og held stefnunni til að ná þeim  kveðja ein sem er hálfvolandi
»
24.04.2008 16:02:38 / kollagisla
það er komið nýtt barnabarn og búið að nefna hann Aron Fannar fallegt nafn á fallegan dreng  Annars er allt gott að frétta Gísli og stelpurnar eru í bænum, er að fara heim á morgunn, þarf að fara að vinna á laugardaginn  ég heyrði í gær í lóunni og hrossagauknum það var æðislegt   er búin að vera að prjóna á fullu vesti á Dagbjörtu Ýr pils á Alexöndru Kolbrúnu og vesti á Friðgeir Örn  stefni að því að fara í sex daga gönguferð á vestfirði mun kosta um fimmtíu þúsund og er allt innifalið í því nema nestið yfir daginn er orðin mjög spennt   Björg systir og Kata systir eru báðar að útskrifast í vor önnur sem stúdent hin sem bókmenntafræðingur  munið að sérhver endir á sér nýtt upphaf kveðja Kolbrún göngugarpur
»
13.04.2008 12:59:54 / kollagisla
ég er ennþá á lífi  Lena ýr er ekki búin að eiga, hann kemur þegar hann er tilbúinn í þennan skrýtna heim  er búin að hafa það ágætt tek svona annarsslagið maníuköst í hálfan mánuð t.d. tiltekt, púsla gleymi mér gjörsamlega í því. Er búin að fara tvisvar til Egilstaða að hitta Lóu geðhjúkku mæli með henni  er að finna mig betur í vinnunni sem er fínt  er í reykjavík núna að taka vetrarfríið mitt, en ætla að nota það til að hitta Önnu Maríu geðlæknir á reykjalundi  vonandi hitti ég einhverja sem ég var með  en það sem er gott núna er að mér hefur ekki liðið svona vel í mörg mörg ár  er farin að þekkja inn á mín veikindi meina þá einkennin, er búin að vera með litlausan heila í mörg ár en núna er að koma litur aftur á hann gulur fyrir lífið, grænn fyrir lífsgleði,rauður fyrir hér er ég takið eftir mér  fjólublár fyrir ástina, þannig að þið sjáið að heilinn er að lifna við  : Alexandra Kolbrún er mjög hress sem er frábært, það á að taka vírana eftir svona viku  þannig að lífið er bjart núna. Munið að njóta hvers augnabliks fyrir sig því þau koma ekki aftur kveðja ein á uppleið
»
18.03.2008 21:33:54 / kollagisla
jæja allir síðan á laugardaginn er þetta búið að vera mjög erfitt hún Alexandra Kolbrún slasaðaðist á laugardaginn, hún þríbrotnaði á kjálka, það var einhver guðsengill sem vakti yfir henni því þetta hefði getað farið á versta veg. Annars er allt gott held ég að frétta byrja að vinna á þriðjudaginn  það er komið vor í reykjavík held ég,Lena Ýr er orðinn vel framstæð en hún á von á sér 11 apríl  annars veit ég ekki hvað ég að skrifa meira er eitthvað voða tóm núna þannig að ég ætla að kveðja núna, munið að segja fólkinu ykkar á hverjum degi að þið elskið það, sofið nú vel Kolbrún
»
24.02.2008 12:31:48 / kollagisla
það kom að því  það var svo gaman að hitta stelpurnar á gullströndinni  gísli var ekki heima er úti i Barcelona  gaman hjá honum,það voru blendnar tilfinningar sem komu upp þegar við keyrðum inn í nafla alheimsins  sem er alveg eðlilegt eða mér finnst það, búin að vera í örygginu á reykjalundi, nú þarf ég að treysta á annað stuðningsnet, sem verður vonandi líka gott  verð að vera dugleg að nota öll verkfærin sem ég er með í höndunum, enginn gerir þetta fyrir mig, eða er einhver þarna úti sem tekur þetta að sér og færir mér svo töflu við því, þá bara eina í eitt skipti  ætla að byrja í ræktinni á mánudaginn og svo skipuleggja þetta vel  !:  ég er eitthvað svo neikvæð núna þannig að það er spurning að hætta núna  hér kemur eitt úr bókinni kjarkur og von: Í dag er stormur og óveðurský, háski og kvöl - Á morgun verður öllu velt við því eftir skúr kemur skin. ein sem er neikvæð núna
»
Síður: 1 2 3 4
|
Heimsóknir
Í dag: 6 Alls: 12128
|